Ný lína frá Scientific Anglers

Ný Sharkskin heitir nýja flotlínan frá Scientific Anglers.   Línan er 100 feta löng (30,5 m). Hún er ekki hál og sleip viðkomu eins og flestir halda að línur eigi að vera heldur hrjúf sem hákarlsskrápur og syngur í lykkjunum. Þú kastar henni þess vegna lengra. Hún leggst út slétt og felld í köldu vatni. Kápa línunnar er þannig hönnuð að hún flýtur hærra og endist lengur. Það glampar ekki á hana í falskasti. Loks hrindir línan betur frá sér óhreinindum.   Sharkskin línurnar eru til í þyngdum 3 til 8 í Ultimate Trout útgáfu og í þyngdum 6 til 10 í Steelhead útgáfunni. Steelhead er sjógenginn regnbogasilungur sem er veiddur í köldu vatni. Þetta er þess vegna  lína sem hentar vel í sjóbirtingsveiðina hér.

NÝJUSTU FRÉTTIR