Ný viðskiptasambönd og heimasíða

Ný Fyrir nokkru var gengið frá því að ÁRVÍK mun taka að sér dreifingu á Mepps spónum hér á landi. Mepps spónar (eða spúnar eins og sumir segja) hafa verið ófáanlegir í verslunum hér um nokkurt skeið en úr því verður bætt fyrir næsta ár. Því miður er afgreiðslufrestur frá framleiðanda það langur að ekki er unnt að fá sendingu til landsins áður en veiðitímabilinu lýkur.   Mepps spónarnir eru mest seldu spónarnir í heiminum. Forystumenn Hafrannsóknarstofnunar geta vafalaust vottað að Aglia Silver spónarnir eru árangursríkt veiðitæki, m.a. til silungsveiða í ám og vötnum.   Þá mun ÁRVÍK einnig taka að sér dreifingu á vörum Richard Wheatley (The Great British Fly Box Company) fyrir næstu vertíð. Vörur Richard Wheatley hafa verið hér á markaði til margra ára og eru stangarhaldararnir þeirra sennilega þekktasta varan.   Meginbreytingum á heimasíðu ÁRVÍKUR er nú lokið. Framvegis verður heimasíðan eingöngu helguð veiði og veiðivörum.   ÁRVÍK hefur látið frá sér efnavörusvið fyrirtækisins og hætt sölu á efnavöru en það var stór hluti af starfsemi félagsins til margra ára. Framvegis mun félagið einbeita sér að sölu og dreifingu á vörum til stangveiði. Þá er stefnt að því að bæta jafnt og þétt við þann fróðleik sem er að finna á heimasíðunni.

NÝJUSTU FRÉTTIR