Fluguhjól á hagstæðu verði

Fluguhjól ÁRVÍK getur nú boðið tvær gerðir af fluguhjólum frá Wychwood – Leeda á hagstæðu verði. Flow fluguhjólin tilheyra Wychwood línunni. Þau eru til í tveimur stærðum fyrir línu 5/6 og 7/8. Liturinn er silfurgrár eða titanium. Þetta eru falleg og vönduð hjól. Flow hjólið var valið Best New Fly Reel á EFTTEX sýningunni á Spáni á árinu 2011. Hjólið kom á markað 2012.   Flow hjólið Minna hjólið er 158 grömm (LE7473) en það stærra er 166 grömm (LE6012). Hjólin eru úr áli með diskahemli. Hægt er að kaupa aukaspólur. Hér er myndband um Flow hjólin: www.youtube.com/watch . Vörunúmer: LE7473 og LE6012. Verðið er kr. 16.400,00 Profil fluguhjólin frá Leeda hafa verið endurhönnuð með sverum ás. Þau eru nú large arbor. Profil LA hjólið er nú  til fyrir línuþyngdir 5/6 (LE9519) og 7/8 (LE9526). Minna hjólið er 190 grömm að þyngd og rúmar flotlínu #6 ásamt 100 m af 20 lb baklínu. Stærra hjólið er 210 grömm og rúmar flotlínu #8 ásamt 100 m af 20 lb baklínu. Hjólið er úr áli. Profil LA Þetta er ódýrt en gott hjól sem sem hefur reynst vel í eldri útgáfu.  Hjólin koma með tveimur aukaspólum, sem auðvelt er að skipta um. Einnig er auðvelt að víxla hjólinu eins og óskað er fyrir vinstri eða hægri handar inndrátt. Verðið er kr. 8.990,00.

NÝJUSTU FRÉTTIR