Degið í jólaleiknum

Degið Þá er búið að draga í jólaleiknum okkar. Vinningshafarnir þrír eru: (1) Eyrún Sif Kragh hlaut fyrsta vinning, A4 Scott flugustöng að eigin vali. A4 stangirnar eru til á lager hjá ÁRVÍK fyrir mismunandi línuþyngdir, allt frá línuþyngd þrjú til átta. Þetta eru meðalhraðar stangir með tiltölulega snögg viðbrögð. Þær eru framleiddar í Bandaríkjunum. Lífstíðarábyrgð er á stöngunum. Leiðbeinandi smálsöluverð stanganna er kr. 69.900. (2) Magnús Einarsson hreppti Aquaz vöðlur af tegundinni BRJ205S. Þær eru saumaðar úr þriggja laga Aqualex-öndunardúk, sem framleiddur er í Japan. Allar vöðlur frá Aquaz eru lekaprófaðar. Leiðbeinandi smásöluverð er kr. 37.900. (3) Sigurbjörn Árnason fékk svo þriðju verðlaun en þau voru silungaháfur og Catch veiðigleraugu með skiptanlegum linsum. Silungaháfurinn er með segli á enda handfangsins þannig að auðvelt er að losa hann og beita honum. Netið er hnútalaust en í miðju þess er þéttriðið net sem auðveldar að fanga flugur af yfirborðinu. Leiðbeinandi smásöluverð háfsins (LE1028) er kr. 4.590. Catch gleraugun koma í tösku sem festa má í belti. Linsurnar eru fyrir mismunandi birtuskilyrði. Þau verja ekki einungis augu veiðimannsins heldur auðvelda honum að sjá undir yfirborðið, bráð í rjúpnaveiði og fóta sig þegar skyggja tekur. Leiðbeinandi smásöluverð er kr. 9.990.                                                                    ÁRVÍK óskar hinum heppnu til hamingju og gleðilegra jóla. Vinningshafar hafa fengið tilkynningu á facebook-síðu sína.

NÝJUSTU FRÉTTIR