Bruce Richards hættir

Bruce Bruce W. Richards, sem verið hefur aðalhönnuður Scientific Anglers á flugulínum í yfir 30 ár, hefur nú látið af störfum. Fluguveiðmenn eiga honum margt að þakka. Flugulínur voru mun einfaldari að allri gerð þegar Bruce hóf störf saman borið við það sem menn þekkja síðar. Þá gátu veiðimenn nánast einungis valið á milli hægsökkvandi línu og flotlínu og öll gerð línunnar var einföld. Nú er öldin önnur. Þar hefur Bruce leikið stórt hlutverk og lagt gjörva hönd á að hanna flugulínur með fjölbreyttum eiginleikum. Hlutur hans í þeirri þróun er merkilegri en flestra annarra. Þekktasta uppgötvun hans er þó sennilega AST (Advanced Shooting Technology) en þá tækni lauk hann við að þróa ásamt samstarfsmanni sínum Del Kauss á árinu 1998. Þessi tækni gerir kápu flugulínunnar sleipari þannig að auðveldara er að kasta línunni lengra, hún flýtur betur, helst hreinni og endist lengur. Þessi aðferð reyndist svo sérstök að einkaleyfi var fengið á henni nokkrum árum síðar. Þessi aðferð hefur verið notuð í framleiðslu á öllum betri flugulínum frá Scientific Anglers hin síðari ár. Bruce er flinkur kastari og veiðimaður. Hann er einnig sérstaklega hjálpsamur og var ávallt reiðubúinn að miðla af reynslu sinni og þekkingu. Hann svaraði ávallt öllum flóknari fyrirspurnum sem veiðimenn hér lögðu fyrir Scientific Anglers fyrir milligöngu Árvíkur. Hann er höfundur að bókinni Modern Fly Lines sem kom út árið 1994. Hún er skyldulesning fyrir þá sem vilja fræðast um flugulínur og gerð þeirra. Eftirlaunaárunum hyggst Bruce verja á nýjum slóðum og flytjast til Ennis í Montana ásamt konu sinni Susan. Árvík þakkar honum ánægjuleg samskipti á liðnum árum.

NÝJUSTU FRÉTTIR