Útsala á flugu- og kasthjólum

Útsala ÁRVÍK er með sumarútsölu á flugu- og kasthjólum frá Scientific Anglers og Wychwood. Verðið þessara vara er mjög hagstætt og til viðbótar bjóðum við kaupendum nú 30% afslátt frá því verði. Hjólin, sem standa kaupendum til boða, má finna með því að slá orðið WShjól inn í leitargluggann á heimasíðunni: www.arvik.is. Hvaða vörur eru þetta? Á útsölunni er að finna bæði fluguhjól og hjól fyrir kaststangir, svo og spólur fyrir fluguhjól og Competition hjólatöskuna. Þetta eru t.d System 2 og 2L hjólin frá Scientific Anglers, sem voru einhver mestseldu fluguhjólin lengi vel. Einnig er Large Arbor 890 hjólið á útsölunni. Þá má nefna Truefly fluguhjól í gjafaöskjum frá Wychwood. Í stað þess að borga kr. 24.990 eins og þau kostuðu síðasta sumar, kosta þau nú kr. 17.990. Tvær aukaspólur fylgja. Með 30% afslætti hefur verðið lækkað í kr. 12.593. Afslátturinn reiknast frá því verði sem sýnt er á heimasíðunni. Hvernig gengur þetta fyrir sig? Viðskiptavinir geta pantað þessar vörur í netversluninni eða sent okkur pöntun í tölvupósti. Við reiknum afsláttinn fyrir viðskiptavininn. Vörurnar eru merktar WShjól og má skoða í heild á heimasíðunni: www.arvik.is með því að skrá WShjól inn í leitargluggann efst í hægra horninu. Þá birtast allar útsöluvörurnar. Einnig má senda okkur tölvupóst á arvik@arvik.is og panta. Við sendum vörurnar með póstinum en viðskiptavinir geta líka sótt þær á Garðatorg 3 í Garðabæ. Við svörum fyrirspurnum viðskiptavina í síma 568 7222. Nöfn þeirra viðskiptavina, sem versla fyrir 4. ágúst, verða sett í lukkupott. Eftir Verslunarmannahelgina verður dregið úr nöfnunum og þá kemur í ljós hver hlýtur 15.000 króna gjafabréf. Hér fyrir neðan eru myndir af sumum þeirra vara sem er að finna í tilboðinu. Vörurnar í heild má sjá með því að slá WWsól inn í leitargluggann efst í hægra horninu á heimasíðunni. Gleðilegt veiðisumar.

NÝJUSTU FRÉTTIR