Hlíðarvatnsdagurinn er 11. júní

Hlíðarvatnsdagurinn... Stangaveiðifélögin, sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi, bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu sunnudaginn 11. júní næstkomandi. Þetta eru Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík. Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því. Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 um kvöldið. Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf tegund, þyngd, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil vegna hættu fyrir sauðfé. Þeir, sem sótt hafa vatnið að undanförnu, hafa veitt ágætlega, þegar vel hefur viðrað, þannig að vel gæti fiskast, enda er spáin góð. Hlíðarvatn – Urðarvík (ljósm. ÁÁ) Hlíðarvatn séð úr lofti (ljósm. Lárus Karl Ingason)

NÝJUSTU FRÉTTIR