Vörur sem borga sig en borgar ekki að auglýsa
UV vöðluviðgerðarefni frá LOON. Þetta er frábært viðgerðarefni. Það er í fljótandi formi úr túpunni. Það harðnar í sólarljósi eða UV geislum vasaljóssins frá Loon. Athugið að gera við í skugga, svo það harðni ekki fyrr en búið er að bera á þann flöt sem á að gera við. Það verður þétt og sveigjanlegt og pottþétt vatnshelt. Hægt er að gera við blautar vöðlur hvort heldur sem er neoprene- eða öndunarvöðlur.
Ice-off frá LOON. Það tryggir að ekki verður oftar frosin lína í lykkjunum. Það kemur að góðum notum niður að -8°. Það er borið á lykkjur og línu með því að smyrja því á með fingrunum. Síðan þarf að endurtaka þetta eftir þörfum.
NR frá C&F Design. Nú hangir háfurinn réttur og flækist ekki í greinum á leiðinni. Segullinn heldur honum uppi, þar til þú þarft á honum að halda