Árni Árnason er framkvæmdastjóri ÁRVÍKUR hf. Hann lauk prófi í rekstri og stjórnun fyrirtækja frá háskólanum í Minnesota (MBA) 1974.

Berglind Friðþjófsdóttir annaðist tollafgreiðslu innfluttrar vöru, tollskýrslugerð og verðútreikning á innflutningsvörum félagsins. Berglind lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði 1981 og stundaði síðar framhaldsnám í lögfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur unnið á lögfræðistofum og hjá tveimur innflutningsfyrirtækjum áður en hún kom til starfa hjá Árvík hf.

Elsa Jónsdóttir annaðist bókhalds- og gjaldkerastörf hjá Árvík hf.  Það fól m.a. í sér færslu bókhalds, útsendingu og innheimtu reikninga og önnur fjármál.  Hún hefur annast bókhalds- og gjaldkerastörf hjá ýmsum fyrirtækjum til margra ára.  Hún hefur einnig lokið prófi sem leiðsögumaður og starfar einnig á því sviði. 

Garðar Stefánsson sinnti nokkrum sérverkefnum vegna sölu á veiðivörum.  Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi, af hagfræðibraut árið 2004 og síðar prófi frá Háskólann í Reykjavík í viðskiptafræði. Helstu áhugamál hans eru fluguveiði og skotveiði.

Geir Thorsteinsson sá um uppsetningu á heimasíðu félagsins í fyrstu og vefverslun þess. Geir er viðskiptafræðingur að mennt en lauk síðar MBA námi frá Háskóla Íslands á árinu 2004. Hann hefur mikla reynslu af veiðiskap, bæði fluguveiði og skotveiði.

NÝJUSTU FRÉTTIR