Griffin hnýtingaþvingur
Hnýtingaþvingur eru til af ýmsum gerðum. Þær skiptast aðallega í tvo flokka. Annars vegar eru þvingur með festingu fyrir borðplötu og hins vegar með fótstalli sem heldur þvingunni stöðugri. Einnig má yfirleitt kaupa fótstykki sér eða borðfestingu og breyta þvingunni þannig.
Annað atriði, sem skiptir miklu máli, er hvernig kjaftur þvingunnar er. Stundum er hann fastur en hann getur einnig snúist þannig að hann heldur flugunni á sama stað (e. true rotary). Það er mikill kostur.
Montana Pro Vise þvingan frá Griffin hentar bæði atvinnumönnum og byrjendum. Kjafturinn er úr stáli og heldur föstum smáönglum frá stærð 22 upp í stóra öngla í stærð 7/0. Þvingan færst með borðfestingu en hún er einnig fáanleg í útfærslu með fótstykki.
Úrvalið af hnýtingaþvingum frá Griffin er fjölbreyttara. Sem dæmi eru mjög góð kaup í Odyssey Spider þvingunni. Odyssey Cam er einnig áhugaverð.
Oddyssey Spider Oddyssey Cam
Loks má nefna toppinn af þvingunum frá Griffin, Montana Mongoose:
Á heimasíðunni, í vöruflokknum ,,Fluguhnýtingar – helstu verkfæri“, má finna mikið af aukahlutum og verkfærum til fluguhnýtinga, og ekki síst frá Stonfo, í kaflanum um „Stoppioni hnýtingaþvingur og verkfæri“.
Þá er rétt að benda á töskur fyrir fluguhnýtingarnar, sem rúma bæði værkfærin og hnýtingaefnið. Fishpond er t.d. með góða tegund af tösku: Tailwater fly tying kit sem auðveldar gott skipulag á verkfærum og efni til fluguhnýtinganna:
ÁRVÍK © desember 2024